Eldsteiktar Pönnukökur og Ananas í Tequila




Innihald:

8 stk pönnukökur
8 stk sneiðar ananas
80 gr hnetuspænir
10 cl tequila
250 gr sykur
500 ml mjólk
½ tsk matarsódi
1 stk kanelstöng

Cajeta síróp:

Cajeta:
Blandið öllu saman og sjóðið í c.a. 2 1/2 klst.

1 Raðið á fat ananassneiðum, cajetu og pönnukökum og vínanda.

2 Hitið pönnu og hellið cajetu á. Leggið ananassneiðarnar á, kraumið stutta stund og snúið við einu sinni. Hellið víni á og berið eld að.

3 Skammtið eina sneið á mann og flamberið pönnukökur á sama hátt.

4 Framreiðið með vanilluís.

Búið.
————–