Hægt er td að prófa sig áfram með allskonar rissotto. Eða steikt hrísgrjón með því sem til er (og passar saman).
Fyrst þið hafið alvöru áhuga á eldamennsku er um að gera að reyna að prófa sig áfram með ýmiskonar sósur - heitar og kaldar. Sósur tekur langan tíma að fullkomna og því um að gera að nýta skólatíma í svoleiðis.
jájá en málið er að við höfum bara 80 mínútur til að elda þannig að það er ekki hægt að gera eitthvað sem tekur mikinn tíma og það þarf mikinn tíma í flestan mat sem á að vera góður.
Risotto tekur nú ekki meira en hálftíma. Sósur ættu að taka ca. klukkutíma, en hægt er að prufa fleiri en eina gerð í einu því það er ekki mikil vinna í þeim eftir að suðan er komin upp.
Prófið etv að slá upp Nigel Slater Real Fast Food á netinu og ath hvort ekki komið e-ð gott. Allt sem ég hef prófað af uppskriftum Slater er annað hvort gott eða frábært (sumt himneskt) - spurningin er frekar hversu mikið af því er á netinu.
Það sem mér dettur fyrst í hug er einn frábær réttur sem ég var alltaf látin gera í heimilisfræði. Það var fiskur með eplum og karríi … mmmmm … Ég man því miður ekki uppskriftina :S
byrjað er á því að setja smá af aspassafanum í pott og blanda saman við sveppaostinn og svo er skinkan og aspasin söxuð niður og blandað saman við… þegar blandan er orðin vel heit er henni smurt á rúllubrauðið og rúllað upp… geyma svo smá af blöndunni til að smyrja oná brauðið og ostsneiðum raðað ofaná og kryddað með paprikudufti…. einnig er gott að setja paprikuduft saman við blönduna oní pottin áður en henni er smurt á brauðið
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..