Jæja hver kannast ekki við að fá sér tvær brauðsneiðar með skinku og osti og smella því í samlokugrillið/mínútugrillið.

Prófið næst að setja McCormick Garlic Salt á samlokuna þegar þið eruð búin að taka hana úr grillinu (bragðið hverfur ef þið setjið það á áður)
Eða setja Garlic Salt á milli og nokkrar sneiðar af tómötum og setja hana í örbylgjuna, það er snilld.
Síðan er hægt að setja sinnepssósu á milli. Takið samlokuna úr rétt áður en hún er tilbúin og setjið sósuna á milli og setjið samlokuna aftur í grillið í bara smá stund og þá er hún heaví góð.
Veit til þess að einvherjir setji Season All á milli og mér fannst það bara nokkuð fínt þegar ég prófaði það síðast.
Síðan er hægt að setja Aspars, fíla það ekkert rosalega sjálfur.
Ananas er hinsvegar algjör snilld til að setja á milli.
Síðan er hægt að setja tómatssósu og smá oregano, sumir fíla það :)
Anyways endilega bætið við einhverjum öðrum afbrigðum<br><br>******************************
Englar! Opnið hjörtu ykkar og hleypið inn nýju hatri.
Engel mun leiða ykkur á ný.