Svona bý ég til nachos og er stolltur af því :P


þetta fer allt eftir hvað þú ert að gera fyrir marga en þetta á að duga fyrir svona 2-4

1 dolla rjómaostur
1 krukka af salsa sósu eða einhverju álíka. Kaupið sterka eftir smekk.
rifinn ostur


Byrjið á að setja rjómaostinn í eldfast mót og stappið hann jafnt um mótið með gafli.
hellið sósunni yfir og dreifið. setjið svo rifna ostinn yfir (því meiri ostur því betra) hendið þessu inní ofn þangað til osturinn er bráðnaður og farið að krauma aðeins í þessu öllu. Best er að bera þetta fram með osta Doritos.