Vona að ykkur líki

100 grömm smjörlíki
100 grömm haframjöl
150 grömm sykur
1 egg
1 matskeið hveiti
1 teskeið ger

Smjörlíkið brætt og hellt yfir haframjölið og látið bíða í smá stund. Egg og sykur þeytt vel og þurrefnunum (líka smjörlíkishaframjölinu;))
hellt út í. Sett með teskeiðum á bökunarpappír.
þegar þær eru tilbúnar húðið með súkkulaði.

———
Tinni Ingólfs
Allir hlutir eru haldnir heimþrá til jarðarinnar og þess vegna falla þeir þangað þegar tækifæri gefst.