BOTN:
1dl haframjöl
100g hveiti(2dl)
85g sykur(1dl)
125g smjör

FYLLING:
4 græn epli
100g smjör
150g sykur
2msk hveiti
2 1/2dl rjómi
1tsk kanill
100g möndluflögur

NR.1
BOTN:Blandið saman haframjöli,hveiti og sykri.
Myljið smjörið saman við og hnoðið lítillega.Þrýstið í botninn og upp með hliðum á 24 cm eldföstu móti.Forbakið botninn í 200°C heitum ofni í tíu mín.
NR.2
FYLLING:Flysjið eplin og skerið þau í báta og raðið í bakaða botninn.
NR.3
Bræðið smjörið og hrærið hveiti og sykri saman við.Hellið rjómanum útí og sjóðið í 2-3 mín.Hrærið möndluflögur og kanil saman við.
NR.4
Hellið sykurblöndunni yfir eplin og bakið í 150°C heitum ofni í 30 mín.

Þið verðið að prófa þetta með ís eða þeyttum rjóma.