Ég ætla að skrifa hvernig maður gerir marzipan grís. Soldið sem að ég hef gert hvert einasta ár á þessum tíma.
Þetta er mjög fljótlegt og mjög létt:

Manni vantar svona marzipan rúllu sem er á stærð við bjúgu og bleikt litarefni.
Þá er það bara að hnoða öllum marzipaninum saman í skál og hella eins og 4 - 5 dropum af litarefninu (mismunandi hvað þarf mikið, þarf bara að gera marzipaninn alveg bleikann).
Svo mótar maður grís úr marzipaninum. Ég geri oft fæturna sem svona smá kúlur og búkinn sem svona eitthvað í laginu eins og pera, augun úr rúsínum og svona huge dumbo eyru. Svo má ekki gleyma krullótta skottinu ;)

Kv. StingerS