Þetta er frábær kaka, auðveld og fljótgerð!
Hún fæst á Argentínu steikhúsi, en þá í mun minni skömmtum.

2 egg
2 dsl sykur
1 1/2 dsl hveiti
1 msk vanilludropar
3 msk kakó
125 gr smjörlíki

*Egg og sykur þeytt vel, vanilludropum og kakói bætt útí.
Bræðið smjörlíkið og bætið varlega út í.
Bakað við 175° - 200° í 20 mín. Formið á ekki að vera stórt (ca eins og fyrir litlar marmarakökur)

Ath. kakan á að vera mjög blaut að innan og berist framm með ís.

Endilega prufið og segið hvernig ykkur fannst, þið verðið ekki vonsvikin!