Jæja ég vissi reyndar ekki hvar ég ætti að henda þessu en það vildi svo til að mér datt í huga að kaupa mér pizzu svona sem maður kaupir í búð!

Ok allt í lagi með það, ég kaupi pizzu sem mér líst vel á af umbúðunum að dæma og stærðinni á þeim!

Svo þegar ég kem heim og ætla að fá mér þá eru þetta pinkulitlar pizzur í stórum pakningum!
Þegar ég var loksins búinn að jafna mig á því þá ákvað ég nú samt að borða þetta!
Ég tek mína magarítu og elda hana og viti menn, þetta voru einar ógeðslegustu pizzur sem ég hef smakkað….svona miglubragð einhvernveginn af þeim!

Svo fór ég aðeins að kíkja á pakninguna og þar stendur í horninu mjög litlum stöfum “ATH:Myndin sýnir ekki nákvæma mynd af innihaldinu” eða eitthvað þannig.

Ég hvet bara engann að kaupa þessar pizzur nema hann vilji komast í vímu eða eitthvað!

Ég er búinn að ákveða að ég panta eða kaupi það sem ég er vanur að kaupa eftir þetta!