Jæja gott fólk…. ég er tiltölulega nýbúin að komast að því að ég á það til að framreiða bara hinu ágætis rétti (hélt sko að ég kynni ekki að elda) svo ég er farin að vera duglega að elda mat, og þá from skraps!!! seinast lærði ég að elda rosa góðan pastarétt (hér á huga) sem ég meira að segja útfærði örlítð og hann er enn betri fyrir vikið! (er einmitt að japla á afgöngunum síðan í gær)
Það næsta sem mig langar að taka mér fyrir hendur er að læra að gera karrýsósu og fá einhverjar uppskriftir að karrýréttum!
Svo að ef einhver þarna úti getur komið með þetta fær viðkomandi stórt knús frá mér! :):):)

kveðja Tenchi