240 gr. sykur
6 egg
360 gr. dökkt súkkulaði
200 gr. smjör
240 gr. malaðar möndlur
2 msk. koníak
4 msk. kaffi

Þeyttu saman sykri og eggjarauðum. Bræddu súkkulaði og smjör í vatnsbaði. Hrærðu varlega sman báðar blöndur ásam möndlumjöli, kaffi og koníaki. Bættu varlega stífþeyttum eggjahvítum í. Helltu deginu í smurt, kringlótt dorm. Bakað í 55 mín. við 180 gráður. Kældu kökuna í nokkra tíma svo hún falli saman.
Berðu fram með rjóma og berjum.