Ég ætla að senda inn uppskrift sem mjög fáir þekkja af hinu dásamlega bragðgóða kókosbrauði.

Kókosbrauð fyrir 2

1) Bræddu smá smjörlíki á pönnu, hafðu hitann 6-7.
2) Láttu 4 matskeiðar af sykri á pönnuna.
3) 2 matskeiðar af kakó (Ekki Swiss miss, ég mæli með bónuskakóinu)
4) 1/2 - 1 dl af vatni
5) Blandaðu öllu vel saman
6) Skelltu venjulegu brauði á pönnuna (2 sneiðar)
7) Veltu því vel upp úr og láttu svo á disk.
8) Stráið kókosmjöli yfir

Ég mæli með því að drekka mjólk með, verði ykkur að góðu.

Kv. Regí
-