Ég ætlaði bara að koma því fram að mér finnst, persónulega, besti ís veraldar sé seldur í ísbúðinni í úlfarsfelli!!! Þar er hægt að fá frábæran ís, bæði rjómaís og svona gamaldags ís sem er með meira vanillubragði!! Svo er líka endalaust úrval af bragðtegundum í shake og sósur á ís:)
Það þarf kannski ekki að taka það fram en ég er algjör ísæta og væri alveg til í að borða ís í öll mál….. Myndi samt trúlega fá fljótt leið á því. En aldrei að vita, maður ætti kannski bara að prófa að fara í svona ískúrog borða bara ís og hreyfa sig eitthvað og þá myndi maður kannski léttast eitthvað??? Það er aldrei að vita:) En endilega prófið að koma þarna við eitt kveldið, í úlfarsfell ísbúðina!!!!