Góða kvöldið.

Ég var að velta því fyrir mér hvort að einhverjir hérna inni geti hjálpað mér með eitthvað af gömlum þjóðlegum uppskriftum. Svo er mál með vexti að ég hef byrjað á heimasíðu sem ber nafnið Tradisjoner.no - <a href="http://tradisjoner.no">http://tradisjoner.no</a> . Á síðu þessa legg ég út þjóðlegar uppskriftir frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Færeyjunum. Ég hef einnig lagt út eitthvað af öðru efni sem að viðkemur matarhefðum þessara landa. Það væri gaman í heyra í fólki sem hefur einhverjar gamlar góðar íslenskar uppskriftir í förum sínum sem að hægt væri að birta á síðunni.

Leita einnig að orðtökum, sögum og öðru efni sem að við kemur matarhefðum fyrri tíma á Íslandi.

Með kveðju

Magnús Þór Magnússon