Alveg ótrúlega gott salat sem ég smakkaði í saumaklúbb um daginn. Þá var það borið fram með góðu hvítlauksbrauði úr bakaríi.

Osta- og skinkusalat

6 dl. brauðostur í teningum
2 dl. skinkustrimlar
1 dl. ólífur í bátum
1/2 rauð paprika, í strimlum
1/2 græn paprika, í strimlum
2 vorlaukar, í sneiðum
2-3 hvítlauksrif, söxuð
1 1/2 dl. ólífuolía
2 msk. steinselja, söxuð

Öllu blandað saman. Gott að bera fram með ristuðu brauði. Getur einnig hentað sem meðlæti á hlaðborði.
Sá sem margt veit talar fátt