Þegar ég bjó í Bandaríkjunum féll ég fyrir graskersböku. Fékk uppskrift af henni þar en týndi henni fyrir nokkru, en fann þessa á netinu sem er ekki svo ósvipuð minni uppskrift.
Mér reynist erfitt að fá grasker hér á Íslandi en hef brugðið á það ráð að kaupa það í salatbarnum í Hagkaup.

Botn
1 bolli hveiti
1/8 tsk salt
1/3 bolli smjör, kælt
3 msk kalt vatn

Fylling
2 egg
1 bolli púðursykur
1/2 bolli rjómi
450 gr graskersmauk
1 tsk kanill
1/2 tsk engifer
1/2 tsk múskat
1/2 tsk salt

Þeyttur engiferrjómi
1/2 bolli rjómi (ekki matreiðslurjómi)
1 msk sykur
1/4 tsk engifer

Stillið ofninn á 220°. Hrærið saman hveiti og salti í stórri skál; bætið við smjöri í bitum. Vatni er bætt við og hrært saman með gaffli. Hnoðið deigið í kúlu.

Fletjið deigið út á hveitistráðu borði (ekki hafa of mikið hveiti) í hring sem er ca 28 cm í þvermál. Setjið í bökumót sem er 26 cm í þvermál. Fjarlægið það þeig sem fer útfyrir. Geymið botninn meðan fyllingin er útbúin.

Hrærið egg á meðalhraða í stórri skál þangað til þau eru orðin þykk (ca 2-3 mínútur). Bætið við rest af hráefni í fyllinguna, hrærið uns allt er vel blandað saman (ca. 1-2 mínútur).

Setjið fyllinguna ofan á botninn. Bakið í 10 mínútur. Lækkið þá hitann í 180°. Bakið áfram í 40-50 mínútur. Stingið með hníf í miðju bökunnar til að athuga hvort hún sé tilbúin. Ef hnífurinn er hreinn eftir að það hefur verið gert er bakan tilbúin. Kælið alveg.

Þeytið 1/2 bolla af rjóma í skál, á hæsta styrk . Bætið sykri og engifer við. Haldið áfram að þeyta uns rjóminn er orðinn stífur (ca. 1-2 mínútur).

Berið bökuna frama með engiferrjómanum. Ef ekki á að bera bökuna strax fram þarf að geyma hana og rjómann i kæli.

Kveðja,
Tigerlily