Saltfiskur er herramanns matur…

600g. útvatnaður saltfiskur
2 stórir laukar, saxaðir
1 lítil dós tómatmauk (purée)
1 bolli vatn
2 lárviðarlauf
salt eftir smekk
svartur pipar (vel af honum)
1/2 bolli ólífuolía
10 litlar kartöflur (flysjaðar)

Setjið allt nema kartöflurnar í pott og sjóðið í 10 mínútur. Bætið kartöflunum út í og sjóðið við lágan hita í 45 mínútur. Bætið vatni út í ef rétturinn verður of þurr. Berið fram með góðu brauði.
Sá sem margt veit talar fátt