Humarsalat Mér finnst humar algjört æði og það er alltaf gaman að smakka nýjar útgáfur af honum :)

Hérna kemur uppskrift að þvílíkt góðu humarsalati, sem passar við öll tækifæri :)


400 gr. soðinn humar
2 tómatar
1/2 dós maískorn
12 grænar fylltar ólífur

Sósa:
1 dós (200 gr.) sýrður rjómi 10%
1/2 msk dill
1/2 tsk sinnep
1/2 tsk hunang
salt & pipar


Skerið humarinn í frekar stóra bita og tómatana í báta. Skerið ólífurnar til helminga. Látið renna af maískorninu og setjið út í. Blandið saman við sósuna og hellið yfir salatið.
Kveðja simaskra