Ef þið eruð orðin leið á þessu “týpísku” brauðréttum, þá á ég hér einn öðruvísi. Virkilega góður og mjög fitandi ;o)

1 dós sýrður rjómi (36%)
1 dós sýrður rjómi (18%)
1 1/2 dl. rjómi
1 dós sveppir (200g.)
1 dós aspas (300g.)
250g. skelfiskur eða krabbakjöt (surim)
100g. skinka
100g. ostur (26%)
10 sn. samlokokubrauð, hvítar
1/2 tsk. karrý
1 tsk. laukduft
1 tsk. Season All

Blandið saman sýrðum rjóma og rjóma og bætið safanum af sveppunum og aspasnum út í. Kryddið m/ karrý, laukdufti og Season All. Hreinsið skelfiskinn/krabbakjötið, smækkið og blandið út í rjómablönduna ásamt sveppum, aspas, saxaðari skinku og rifnum osti. Skerið brauðið í teninga og blandið saman við. Setjið blönduna í eldfast mót í ofni v/200°c í 20-30 mín. Berið fram sem sjálfstæðan rétt eða á kaffihlaðborði.

Verði ykkur að góðu!
Sá sem margt veit talar fátt