Ok. Með því að impróvisera frjálslega þegar ég hef verið svangur heima og fikta mig áfram, hef ég búið til/fundið upp hina fullkomnu samloku. Registered copyright, en ég skal þó deila þeirri uppskrift með yður hungruðum. :)

Þú tekur tvær brauðsneiðar

Smyrð aðra með BBQ sósu
leggur svo skinku, eða annað gott kjötálegg á
ofan á það kemur ostur

tekur tómat og skerð 2-4 sneiðar og leggur á fyrrnefnda sneið

tekur ca. 4 ólívur, skerð í sneiðar og leggur enn á sömu sneið

Þá er hin brauðsneiðin: Hellir fyrst sítrónusafa á hana, í brauðið.
hellir svo dálítilli chili-sósu út á
Tekur svo Tabasco-sósu og lætur drjúpa dálítið
Lætur einnig drjúpa smá soya-sósu
Loks tekurðu til grillkrydd og ítalska hvítlauksblöndu, og stráir eilitlu á.

Setur svo í ofn/samlokugrill, og tekur út þegar osturinn er orðin vel bráðinn

(Gott að hafa einhver góðan, kaldan drykk með)


Bon appetit! :)