Þessa fékk ég senda í e-mail, veit ekkert hver er höfundurinn en hann á svo sannarlega hrós skilið

Klikkað kjúklingasalat

3 kjúklingabringur
iceberg
sesamfræ
4-5 msk. hunang
rauðlaukur
tómatar
avacado
paprika (rauð og jafnvel græn)
fetaostur

Ristið sesamfræin og takið þau af pönnunni.
Kjúklingabringurnar eru skornar í bita og steiktar á pönnu. Þegar að þær eru alveg að verða tilbúnar bætið þið hunangi útí og steikið þar til kjúklingurinn hefur fengið gylltan lit á sig!
Sesamfræum bætt á pönnuna og látið festast við kjúklinginn að eh. leiti.
Grænmeti skorið niður, frekar smátt eða eftir smekk hvers og eins, því blandað saman og látið í skál. Kjúklingurinn settur ofaná grænmetið og svo fetaostur ofaná það

Alveg pottþétt fyrir þá sem á annað borð “fíla” svona

bkv.
chloe
það besta sem Guð hefur gefið mér……… eru börnin mín