Þessi er í miklu uppáhaldi á mínu heimili. Eiginlega bara besta kaka í heimi. Ég fékk uppskriftina hjá frænku minni fyrir nokkrum árum síðan.

200 gr. suðusúkkulaði
200 gr. smjör
4 egg
3 dl. sykur
1 dl. hveiti
100 gr. heslihnetuflögur

Bræðið saman smjör og súkkulaði við vægan hita og kælið. Þeytið vel egg og sykur, þar til blandan verður létt og ljós. Saxið heslihnetuflögurnar mjög smátt. Blandið súkkulaði blöndunni verlega saman við eggin með sleikju. Svo hveitinu og hnetunum. Blandið öllu varlega saman. Sett í tvö smurð hringform og bakið við 180°C í um 25 mín. Sigtið flórsykur yfir kökurnar.

Athugið að kakan á að vera blaut og svolítið klesst. Berið fram með þeyttum rjóma eða ís.

Verði ykkur að góðu.
“let's build more cars so we can drive away before we choke…”