Pizzurán í Kanada! Svangur maður frá Edmonton í Kanada hótaði starfsfólki pizzustaðar með skammbyssu eftir að honum var sagt að það tæki hálftíma að fá heimsenda pizzu.

Samkvæmt frásögn lögreglunnar í Edmonton varð maðurinn reiður eftir að starfsfólk veitingarstaðarins Homemade Steak and Pizza sögðu honum að það tæki rúmar 30 mínútur að fá senda pizzu.
Hann mætti sjálfur a svæðið eftir 20 mínútur með byssu og krafðist þess að fá stóra grænmetispizzu og það strax.

“Við höfum séð ýmsa skrítna hluti í gegnum tíðina en þetta tekur öllu fram” sagði talsmaður lögreglunnar, Dean Parthenis.

Starfsmenn Homemade Steak and Pizza segja að byssumaðurinn hafi tekið sér um klukkustund til að snæða pizzuna á meðan hann beindi byssunni að þeim.

Lögreglan segir að tveir starfsmenn og einn viðskiptavinur hafi fengið höfuðhögg en ekki neinum skotum hafi verið hleypt af.
Þeir eru þegar búnir að handtaka árásarmanninn ásamt tveimur ungmennum sem snæddu pizzuna með honum.