4-5 epli

deig:
150 gr sykur
150 gr hveiti
150 gr mjúkt smjörlíki

aðferð:
Eplin skorin í bita og sett í smurt eldfast mót súkkulaðispænum og kanilsykri stráð yfir (eftir smekk má sleppa).
Deigið er mulið yfir eplin og súkkulaðispænum og kanilsykri stráð yfir deigið(eftir smekk).
Bakað í 30-40 mín á 180°c.
Borið fram með ís eða rjóma.

Verði ykkur að góðu.