Mig langaði til að breyta aðeins til og vinur minn sem er sjómaður var búin að láta mig hafa hörpuskel svo ég ákvað að prufa uppskrift sem ég fékk hjá öðrum vini mínum.

Hér kemur hún:
16 stk risahörpuskel
1 tsk. Badiaminced garlic
2/3 dl hvítvín (þurrt)
1 peli rjómi
Salt og Pipar
1 tsk. grænmetiskraftur

Fiskurinn er steiktur í tæpa mín. á hvorri hlið.
Hvítlauksmauk hvítvín, rjómi, salt, pipar og grænmetiskraftur er sett á pönnu og það soðið niður.
Fiskurinn settur úti og borið fram strax

Þetta er mjög góður forréttur.