Jólakakan í ár, uppskrift

Eruð þið ekki öll byrjuð að baka?

Ekkert smá girnileg þessi !!

Hér kemur loksins uppskriftin af jólakökunni góðu.
Njótið vel.

Efni:
1 bolli vatn
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurrkaðir ávextir
1 teskeið bökunarsódi
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 FULL flaska af eftirlætis viskíinu ykkar


Meðhöndlun:

1. Smakkaðu viskíið til að vera viss um að það sé
ekki skemmt.

2. Takið stóra skál. Athugið viskíið aftur til að
vera alveg viss um að það
sé ekki skemmt.

3. Hellið í einn bolla og drekkið.

4. Endurtakið.

5. Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri
í stóra mjúka skál.

6. Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur.

7. Athugið hvort viskíið sé nokkuð farið að
skemmast.

8. Fáið ykkur annan bolla.

9. Slökkvið á hrærivélinni.

10. Brjótið tvær fætur og bætið í skálina og hendið
útí bollanum af
þurrkuðu ávöxtunum.

11. Hrærið á kveikivélinni.

12. Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararana
losið þá þá af með
rúfskjárni.

10. Bragðið á viskíinu til að athuga brestgratið.

11. Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju.
Hverjum er ekki sama.

12. Athugið viskíið.

13. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar.

14. Bætið einu borði, skeið, af sykri eða eitthvað.
Hvað sem þú finnur
nálægt.

15. Smyrjið ofninn.

16. Stillið kökuformið á 250 gráður.

17. Gleymið ekki að hræra í stillaranum.

18. Hendið skálinni út um gluggann og rokið lúðunni.

19. Athugið viskíið aftur og aftur. Farið að sofa.

……..Finnst nokkrum hvort sem er ávaxtakökur
góðar!