2 kjúklingar
2 dl. apríkósumarmelaði (gróft)
100gr. púðursykur
50gr. smjörlíki
2 dl.barbequesósa (Hunt's Original)
1 peli rjómi
1 dl. sojasósa

Kjúklingarnir hlutaðir niður og settir í eldfast mót. Öllu jukkinu blandað
saman í pott og látið bráðna saman, ekki sjóða. Þessu er síðan hellt yfir
kjúklingna og sett í 200 gráðu heitan ofn í 1 klst.

Njótið vel,