Ákvað að reyna að lífga aðeins uppá dauflegt áhugamál og
koma með eina gagnrýni, ef þessi nýjung leggst ágætlega í fólk gæti
verið að maður komi með fleiri, einnig væri gaman að sjá gagnrýni frá
fleirum um hina og þessa staði, þar sem fólk upplifir staði oftar en
ekki misjafnt.


Hef nú reyndar aldrei orðið svo frægur að borða á þessum stað,
fór þarna einu sinni með fjölskylduna, staðurinn alltaf því tómur
fyrir utan eina fjölskyldu sem stóð upp til að fara og borga um leið
og við mættum á svæðið.
Við semsagt komum inn og biðum við skilti þar sem á stóð
vinsamlegast bíðið hér (eða eitthvað álíka) fólkið stóð svo þarna
nánast við hlíðina á okkur til að borga eftir að fólkið hafði beðið í um eina
mínútu til að getað borgað gekk það nú greitt fyrir sig.
Stúlkan sem svo afgreiddi þau gekk nú aftur inní eldhús án þess að virða okkur
viðlits, eftir að hafa staðið þarna í 3-5 mínútur ákváðum við að nenna þessu ekki og
fórum bara og fengum okkur sæti, enn bólaði ekkert á stúlkunni sem hafði farið inní
eldhús sátum í 2-3 mínútur þar til ég gafst upp á þessari hörmulegu þjónustu búinn að bíða þarna semsagt í 5 - 8 mínútur án þess að nokkur kæmi og þjónustaði okkur, stóðum því upp á endanum og fórum, ég opnaði reyndar inní eldhús og þakkaði fyrir góða þjónustu áður en ég gekk út.

Ég veit að Stúlkan sá okkur á meðan við biðum þarna því hún horfði ítrekað á
okkur á meðan við stóðum og biðum eftir að vera vísað til sætis, en allt kom fyrir ekki.

Niðurstaðan er því sú að Trocadero fær 0/5 fyrir eina þá alverstu þjónustu
á veitingastað sem ég hef upplifað, skilst þó að hamborgararnir þeirra
séu stór fínir en kem nú ekki til með að upplifa það sjálfur þar sem
ég hef þá reglu að ef mér líkar ekki þjónustan þá kem ég ekki aftur.

Næst skal ég svo koma með gagnrýni á stað sem ég er ánægðari með :D

Kveðja
Sexy Bastard
Mín skoðun er ALLTAF sú rétta