Ekta Íslensk kjötsúpa, namm Kjötsúpa er með því besta sem ég fæ, ég prófaði þessa uppskrift sem ég fann á netinu og ákvað síðan að senda hana inn.

1.8l vatn
1kg gott súpukjöt frá SS
500g kartöflur
500g gulrófur
250g gulrætur
1½dl hrísgrjón
100g hvítkál
1½msk súpujurtir
1msk salt(eða eftir smekk)
½stk laukur, saxaður smátt
nýmalaður pipar

Aðferð
Kjötið e.t.v. fituhreinsað að hluta og síðan sett í pott, vatninu
hellt yfir og hitað að suðu. Froða fleytt ofan af, saltað og
súpujurtum, lauk og hrísgrjónum hrært saman við. Soðið í um
40 mínútur. Á meðan eru gulrófurnar afhýddar og skornar í bita,
kartöflurnar afhýddar og skornar í helminga eða fjórðunga, ef
þær eru stórar, og gulræturnar skafnar og skornar í bita. Sett út
í og soðið í 15 mínútur til viðbótar. Kálið skorið í mjóar ræmur,
sett út í og soðið í um 5 mínútur, eða þar til allt grænmetið er
meyrt. Um leið er haframjölið sett ef á að nota það. Smakkað og
bragðbætt með salti og pipar, ef þarf. Kjötið er ýmist borið fram
í súpunni eða með henni á sérstöku fati.


ATH!
Ýmislegt annað grænmeti má hafa í súpuna, svo sem blómkál,
sellerí eða grænkál. Ágætt er að sjóða rófurnar og kartöflurnar
sér í potti. Ef afgangur verður þá er gott að muna að mörgum
finnst kjötsúpan langbest þegar hún er hituð upp í annað eða
þriðja sinn.


Ég fann þessa uppskrift á: http://www.uppskriftir.is/