Grillaður ananas þetta er Geðgt. Ég sá þetta í matreiðslubók einu sinni og ákvað að reyna og mér fannst þetta æði. :) Hvað með þig.
Grillaður Ananas með Karamellu:
Þetta er fyrir 4

-1 stk. Ferskur ananas (það er betra en úr dós)
-1 msk. smjör
-2 msk. Matarolía

Karamellusósa
-150 g. Sykur
-1 msk. Smjör
-1,5 dl Rjómi

Lýsing:
Hýðið ananasinn og skerið í 1-1,5 sm Þykkar sneiðar, stingið kjarnann úr. Bræðið smjör og olíu saman og penslið ananashringina. grillið á meðalheitu grilli í 5-6 mín.

Karamellusósa:
Brúnið Sykurinn á þurri pönnu þar til hann verður karamellubrúnn og fer ap krauma. Setjið smjörið út í og Blandið vel. Hellið rjómanum saman við og sjóðið í 4-6 mín.

Þetta er svo allt gott með, ís eða öðru álíka.
.(SpacE CaT).