Ég grillaði sverðfisk og smálúðu núna um daginn. eitthvað það besta sem ég hef smakkað í langan tíma, fyrir utan túnfisk sem rokkar alltaf feitt. Ég sítrónugljáði smálúðuna á eftirfarandi hátt. Olía, sítrónusafi, sítrónubarkarspænir, smá rósmarín og svo krúsin sett í heitt vatn og hunangi hellt í skálina til að hún falli saman við þetta(gaman að nota appelsínur líka, t.d. með lambi) svo skellt yfir smálúðuna og grillerí í svona 10 til 15 mín eftir smekk og stærð bita.
Sverðfiskurinn var kryddaður með sjávarsalti, tímian, rósmarín smá skarlottulauk og svo látinn marinerast með olíu í klukkutíma. Snöggsteiktur í 4 til 6 mín á mjög heitu grilli. bestur medium rear til rear.
En það sem mig langaði til að ath. er hvort einhver hafi skemmtilegar uppskriftir upp á að marinera smálúðuna eins og síld. Hef einu sinni smakkað það og það var þvílíkt sælgæti. En veit ekki alveg hvernig er gert.
Annars er þetta fyrsta greinin mín hérna en ekki sú síðasta.

Með kveðju.
<img src="