Jæja, ég vona að það sé í lagi að fjalla um drykki á þessu áhugamáli. Mig langaði bara að deila með ykkur alveg snilldarsíðu um drykki en hún heitir The Webtender og er alveg þrælsniðug. Þarna eru upplýsingar um allskonar drykki og innihaldsefni þeirra, það er hægt að leita að uppskriftum af drykkjum og svo það sem mér finnst alveg frábært að það er hægt að velja af lista hráefni sem maður á til og þá finnur tölvan þá drykki sem þú getur búið til með því sem til er :) Jæja en allavegana skoðiði bara :)

http://www.webtender.com/

P.S. hvernig virkjar maður svona link á grein eða kork til að það sé nóg að smella á hann hér?
Kveðja,