Perur
Belle Helene

½ bolli sykur
2 bollar vatn
rifið hýði og safi úr 1 sítrónu
2 vanillustangir
6 perur vel þroskaðar

Sósa:
120 gr suðusúkkulaði
½ bolli rjómi
2 msk smjör
Afhýðið perurnar en látið stöngulinn vera eftir. Penslið sítrónusafa yfir perurnar. Raðið þeim í pott. Látið þær standa. Hitið vatn og sykur í öðrum potti þar til sykurinn hefur leyst upp. Bætið sítrónuhýði og vanillustöng út í. Sjóðið í 5 mín. Hellið vökvanum yfir perurnar, bætið meiri vökva í ef þarf til að fljóti yfir perurnar. Látið krauma við vægan hita í 10-15 mín. Dragið af hitanum. Látið perurnar standa í sírópinu þar til þær eru volgar. Látið leka vel af þeim. Kælið.Sósan:Hitið saman súkkulaði, rjóma og smjör þar til bráðið. Bragðbætið með rommi eða öðru víni. Setjið peru (og ís ef vill) á disk, og hellið volgri sósunni yfir perurnar. Berið strax fram.
1 msk romm