Svakalegar núðlur Chilinúðlur að hætti Birkis
Þetta eru núðlur fyrir ekta karlmenn (og konur) sem þora..

Það sem þarf:

? Einn pakki af Mr. Lee Hot Chili núðlum
? Vatn
? Pott og eldavél
Það er hægt að hita vatn í hraðsuðukatli/örbylgjuofni og hella útá en það er ekki jafngott (að mínu mati).
Eldun:

? Settu 3 desilítra af vatni í pott, sumum finnst kannski betra að setja meira ef að það þolir chili piparinn illa.
? Láttu suðuna koma vel upp, þannig að það gutlar vel í þessu
? Opnaðu núðlupakkann og taktu þurrmixið úr
? Helltu mixinu úr og hrærðu í með gaffli
? Kremdu núðlurnar smá í pakkanum
? Helltu þeim útí
? Láttu þær sjóða þangað til að þú heldur að þær séu tilbúnar, þetta er aðallega smekksatriði
? Hellist í ílát og borðað með gaffli, best er að drekka eitthvað gos eða kaldan drykk með þessu.
Fyrir ofurhuga er hægt að skera smá ferskan chilli og blanda því saman við.. það gefur réttinum ákveðinn kraft.

Verði ykkur að góðu,
Birki