Melónuforréttur Þessa dagana er ég alveg sjúk í gráðost og nota hann mikið í matargerð. Það skiptir ekki máli hvort ég hef hamborgara, súpu, pastarétti eða eitthvað annað, ávallt fær gráðosturinn að fylgja með. Um daginn var ég með matarboð og bauð upp á þennan skemmtilega forrétt, en hann fékk ég í bækling einum sem inniheldur ýmsar góðar uppskriftir.

Fyrir 5-6

1 hunangsmelóna
rækjur
kræklingur

200 gr sýrður rjómi, 10% eða 18%
2 msk mæjónes
100 gr gráðostur
kavíar
paprikuduft

Skera skal melónuna þversum í 5-6 sneiðar, eftir því hve margir ætla að borða.
Hreinsið kjarnann úr sneiðunum og leggið þær á disk.
Setjið rækjur og kræklinga í miðjuna.
Blandið saman sýrðum rjóma og mæjónesi og hellið yfir sjávarréttina.
Stráið rifnum gráðosti yfir og skreytið með kavíar og paprikudufti.