Núðlur Í þessari grein verður fjallað um það hvernig hægt er að matreiða núðlur á konunglega bragðgóðan hátt. Núðlur á borð við Blue Dragon, Nookie og Bachellors eru mjög bragðgóðar og ódýrar, Mr. Lee núðlur eru hins vegar fyrsta flokks gæða núðlur. Margir setja núðlurnar sínar í pott og l+ata þetta allt sjóða en ég hef uppgötvað nýja og sneggri leið: settu núðlurnar í skál og kryddaðu þær með kryddi, ef núðlurnar eru ekki með nógu miklu bragði geturu laumað einum kjötkrafti útí og þannig dóti en á meðan áttu að vera búin/n að setja vatn í “ketil” og tekur vatnið þar að sjóða aðeins 2 mínútur en pottar geta tekið sér allt að 10 mín (fer allt eftir eldavélinni). Svo helliru vatninu í skálina og setur svo disk eða eitthvað yfir svo það komist sem minst gufa út, því þá ætti þetta að taka minni tíma. Svo eftir svona 2½ - 3 mínútur í viðbót ætti þetta að vera til. Þetta er allan vega mín leið til að matreiða núðlur á aðeins 5 mínútum. En svo hafa allir sinn smekk og sínar leiðir til að gera þetta.

Verði ykkur að góðu…