Fann þessa uppskrift af túnfisksalati í gömlum Gestgjafa hjá mömmu (örugglega síðan áttatíu og eitthvað!!). Er búin að prófa og finnst það geðveikt….er aðeins búin að laga það eftir mínu höfði!

2 dós túnfiskur (ca 200 gr)
4 msk majónes
2 msk sýrður rjómi (10%)
1/2 - 1 rauðlaukur, fínsaxaður
1/2 grænt epli, saxað smátt
3 msk ananaskurl, safi síaður frá
3 egg
karrý eftir smekk (1-2 msk)
grófur pipar

Í upphaflegu uppskriftinni er líka 2 msk mango chutney sem ég hef ekki prófað en væri örugglega spennandi…

Endilega prófið og látið mig vita hvernig ykkur finnst….