Ég er svo heppin að vera í námi þar sem við eldum saman einu sinni í viku. Maður græðir margar nýjar og spennandi uppskriftir á þessu. Í dag var baunaþema og var hver spennandi rétturinn á fætur öðrum borinn fram. Ég ætla að skella einni uppskrift hingað inn og verða ég að segja að mér þykir þessi réttur ekki síðri en þeir sem maður getur keypt á Grænum kosti og þess háttar stöðum.

1 bolli kjúklingabaunir
1 stór laukur
4 hvítlauksrif
1 tsk. Garam masala
500 g niðursoðnir tómatar
1/2 bolli rúsínur
1/2 bolli sveskjur eða apríkósur
1 msk. hnetusmjör
1 1/2 dl eplasafi
1/2 bolli kastaníuhnetur
safi úr 1/2 sítrónu
salt og mulinn pipar, ef vill

Baunirnar eru lagðar í bleyti í sólarhring, soðnar í 1 klst. og soðinu svo hellt af. Saxið lauk og hvítlauk og léttsteikið í olíu. Ávextirinir brytjaðir og þeim bætt á pönnuna ásamt tómötunum, hnetusmjöri, eplasafa og svolitlu vatni og látið sjóða saman í ca. 20 mín. Hneturnar eru ristaðar létt. Baununum blandað saman við réttinn á pönnunni og hitað vel. Að síðustu er sítrónusafanum bætt út í ásamt helmingnum af hnetunum og salti og pipar. Hinum helmingnum af hnetunum er svo stráð yfir réttinn.

Borið fram með heimabökuðu brauði og fersku grænmetisalati.
Sá sem margt veit talar fátt