Hæ, ég borða mikið af grilluðum samlokum og þannig lagað, mig langar að rita niður nokkrar af uppáhalds samlokunum mínum og uppskriftirnar af þeim, njoy.

Pizzuloka
Mjög góð loka sem bragðast eins og pizza nokkurnveginn.
Hráefni:
2 samlokubrauð
4 pepperoni sneiðar
pizzusósa
2 sneiðar af skinku
ostur

Aðferð:

Maður byrjar á því að láta sæmilega mikið af ost ofaná bæði samlokubrauðin, dreyfir svo pepperoninu á aðra sneiðina, lætur skinku ofaná báðar. Síðan má líka setja pizzusósuna innaní eða utaná.

Almarssæla
Þetta er uppskrift sem ég var í rauninni bara að prufa í fyrsta sinn fyrir c.a hálftíma :)
Hráefni:
2 samlokubrauð
4 sneiðar af pepperoni
2 skinkusneiðar
ostur
BBQ-sósa

Aðferð:
Dreyfðu ostnum á báðar brauðsneiðar, síðan skaltu dreyfa pepperoniinu á aðra sneið og láttu skinkusneið ofan á, settu síðan hina skinkusneiðina á hina sneiðina. Grillaðu þetta í 3-5 mínútur eða þar til þetta er hæfilega brúnt, BBQ-sósa smurð ofaná.

Jæja, ég man ekki fleiri í augnablikinu, reyni að koma fleirum inn fljótlega ;)

Alma