Hollendingurinn fljúgandi, Gilbert Yvel kemur inn til lendingar í Muay Thai bardaga í Amsterdam.
Yvel þessi er alveg hreint ógurlegur vandæðagemsi, og ein mesta sóun á hæfileikum í MMA. Drengurinn er þvílíkt hæfileikaríkur en alltaf að koma sér í vesen, rífast við dómara og annað slíkt.
Hann er frekar underrated því hann er svo misjafn, honum hefur ekki gengið vel að undanförnu…en það gleymist stundum að þetta er maðurinn sem hefur unnið Mark Coleman, Dan Severn, Tank Abbott, Josh Barnett, Ricco Rodriguez og Andrei Arlovski.
Cro Cop verst öllum takedowns sem stera-wrestlerinn Mark Coleman reynir og ber hann eins og harðfisk með nákvæmum höggum og spörkum. Svona á að gera þetta.
Þessir tveir heimsþekktu MMA bardagamenn takast á í NCAA folkstyle wrestling í háskóla. Couture gegndi herskyldu áður en hann hóf háskólanám, sem er ástæðan fyrir því að hann keppti á móti sér mun yngri mönnum. Þess má einnig geta að báðir eru þeir tilfinnanlegar léttari en þeir voru í UFC, þessi glíma var í 199 punda flokknum.
Frænka mín fór til Kína fyrir stuttu til að læra kung fu og aðrar bardagalistir. Hún segir að þótt það sem hún sé látin gera virðist hræðilega erfitt þá eru krakkarnir í skólanum að gera mikklu erfiðari hluti.
Randy Couture gengur á brott eftir að hafa pakkað Vitor Belfort kyrfilega saman og yfirspilað hann svo hrikalega að annað eins hefur ekki sést í háa herrans tíð í MMA.
Árni Ísaks(nær á þessari mynd) stimplar sig rækilega inn í hina bresku MMA senu með þremur glæsilegum sigrum á einu kvöldi í gamaldags átta manna útsláttarkeppni.
Framundan er titilbardagi í Cagewarriors og þaðan getur leiðin legið hvert sem er…..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..