Æfingabúðir með Chris Fields & Conor McGregor
Magnaðar MMA & NOGI æfingabúðir í Mjölni fimmtudaginn 5. júlí kl. 17:30-21:00 með nýkrýndum heimsmeistara Cage Warriors, Conor McGregor, sem er m.a. þekktur fyrir mjög sterkt MMA box, og Cage Contender meistaranum, Chris Fields, sem er m.a. þekktur fyrir sterkt wrestling (sérstaklega wrestling on the cage). Þeir Conor og Chris koma hingað í nokkra daga ásamt John Kavanagh sem verður einnig á námskeiðinu. John kemur síðan hingað til lands alkominn í september. Þetta er frábært tækifæri til að læra af og æfa með gríðarlega sterkum atvinnumönnum í MMA og ríkjandi titilhöfum úr stærstu keppnum í Evrópu. Skráning fer fram í afgreiðslu Mjölnis (s. 534 4455) og á netfanginu mjolnir@mjolnir.is. Sjá á vefsetri Mjölnis, www.mjolnir.is