Mjölnismaðurinn Jósep Valur Evrópumeistari í BJJ blábeltaflokki Jósep Valur Guðlaugsson, félagi í Mjölni, keppti um helgina á evrópumóti IBJJF og gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn flokk. Jósep keppti í blábeltingaflokki, 30-35 ára, -82,3 kg. Keppendur í flokknum voru 32 talsins.
Sjá nánar um glímur Jóseps í frétt á mjolnir.is og viðtal við Jósep í
Iceland Review.