Karl Tanswell verður í Mjölni um helgina! Það er ekki amalegur „aðstoðarkennari“ sem kemur frá Englandi til að kenna ásamt Matt Thornton á BJJ og MMA æfingabúðum Mjölnis um helgina. Karl Tanswell mætir á staðinn en Karl er svæðisstjóri SBG international á Bretlandseyjum. Hann er einn fárra manna í heiminum til mega kalla sig „SBG full instructor/coach“ og reyndar sá eini í Evrópu. Karl hefur helgað líf sitt þjálfun og ástundum bardagaíþrótta og rekur sinn eigin klúbb í Manchester. Þess má geta nýlega rúllaði Eddie Bravo og þeir sem á horfðu sögðu að Bravo hefði aldrei átt sjens ;)

Til gamans er rétt að nefna að sambýliskona Karl og barnsmóðir er engin önnur en Rosi Sexton, Bretlandsmeistari kvenna í MMA, en mikið hefur verið skrifað um Rosi í fjölmiðlum þar sem hún starfar sem doctor í stærðfræði við Manchester háskóla í dagvinnu. Karl er að sjálfsögðu einnig þjálfari Rosi.

Nánari upplýsingar um BJJ og MMA æfingabúðir Mjölnis eru hér: http://mjolnir.is/wordpress/?p=45