Mjölnir Open verður á laugardaginn, 19. maí Verðlaunahafar í opnum flokki á Mjölnir Open í fyrra en mótið í ár verður haldið núna á laugardaginn 19. maí. Keppt verður í þyngdarflokkum karla og opnum flokkum karla og kvenna. Keppnin verður eins og í fyrra, no-gi glíma.

Dagsetning Laugardagur 19.mai.
Hefst kl: 12:00.
Staður: Júdófélag Reykjavíkur, Ármúla

Skráningu lýkur 18. maí kl 18:00 (engar skráningar á mótsdag).
Þátttökugjald er 1000 kr. og greiðist við skráningu (sendið póst á mjolnir@mjolnir.is).
Keppandi telst ekki skráður fyrr en gjaldið hefur verið greitt.

Vigtun fer fram föstudaginn 18. maí í Mjölni (Mýrargötu 2-8) á milli kl 18:00 og 20:00.
Þyngdarflokkar karla:
-66 kg
-74 kg
-81 kg
-88 kg
+88 kg
Opinn flokkur
Opinn flokkur kvenna
(Þyngdarflokkar kvenna fara eftir þátttöku)
Endilega takið þátt í skemmtilegu móti. Ef ekki sem keppendur þá sem áhorfendur.