OPIÐ HÚS um næstu helgi
Aikikai Reykjavík verður með opið hús um næstu helgi (31. ágúst - 1 september) í Faxafeni 8 frá 11- 16 báða dagana. Starfsemi félagsins verður kynnt, og boðið uppá stuttar prufuæfingar fyrir þá sem vilja. Opið hús er tilvalinn vettvangur til að kynna sér Aikido og ástundun þess hér á landi. Allir velkomnir.

Frekari upplýsingar á: http://here.is/aikikai
(\_/)