Þann 2. september hefjast ný byrjendanámskeið í Aikido hjá Aikikai Reykjavík. Nú í haust verður í fyrsta sinn boðið upp á sérstök námskeið fyrir 13-15 ára unglinga auk almennra byrjendanámskeiða fyrir 16 ára og eldri.

Aikido hentar vel jafnt körlum sem konum og er ástæða til að hvetja áhugasama til að mæta á opna æfingu og prófa.
Aikikai Reykjavík er til húsa í Faxafeni 8, (Miklubrautarmegin)
og byrjendaæfingar hefjast kl. 18:00.

Allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Aikikai Reykjavík http://here.is/aikikai og einnig er hægt að senda fyrirspurnir á aikikai@here.is

obsidian