Íslandsmeistaramót fullorðinna í BJJ verður haldið sunnudaginn 6. nóvember næstkomandi.

Þyngdarflokkar eru eftirfarandi:

Karlar

Létt fjaðurvigt -64 kíló

Fjaðurvigt -70 kíló

Léttvigt -76 kíló

Millivigt -82,3 kíló

Milli þungavigt -88,3 kíló

Þungavigt -94,3 kíló

Yfir þungavigt -100,5 kíló

Súper þungavigt +100,5 kíló

Konur

-64 kíló

+64 kíló

Jafnframt verður keppt í opnum flokki karla og kvenna.

Vigtað er í Gi (galla) á mótsdag.

Lágmarksaldur fyrir þátttöku í Íslandsmeistaramóti fullorðna er 18 ára aldur.

Eftirfarandi félög eru með aðild að BJÍ sambandi Íslands og eru því með rétt til þess að senda félagsmenn til þess að keppa á mótum á vegum BJÍ.

Fenrir, Akureyri

Ármann, Reykjavík

Combat Gym, Reykjavík

Mjölnir, Reykjavík

Pedro Sauer, Hafnarfjörður

Sleipnir, Keflavík

Þátttökugjald er kr. 1.500 á keppanda. Keppendur skrái sig hjá sínu félagi. Félögin skulu skila lista með nöfnum þátttakanda og þyngdarflokkum sinna félaga til BJÍ fyrir kl. 13 föstudaginn 4. nóvember. Eftir það er ekki hægt að skrá sig til þátttöku í mótinu.

Nánari upplýsingar og keppnisreglur hafa verið sendar á formenn og fulltrúa ofangreindra félaga.

Mótið verður að öllum líkindum haldið í judo sal Ármenninga í Laugardalnum eins og undanfarin ár. Ef breyting verður á því verður það tilkynnt með góðum fyrirvara.

Bætt við 12. október 2011 - 21:15
Mótið verður haldið í sal Ármenninga í Laugardalnum þar sem það hefur verið undanfarin ár. Sjá nánar á vefsíðu BJÍ.