Næsta þriðjudag og fimmtudag munu þeir Martin Aedma og Priit Mihkelson kenna no-gi æfingarnar í Mjölni kl. 17. Martin er með svart belti í BJJ og Priit er með brúnt. Þeir hafa verið að mæta á æfingar í Mjölni síðustu vikuna og hafa glímt við Mjölnisfólk á æfingum en þeir gista hér á landi á vegum Mjölnismanna. Í Þessari viku fá Mjölnismenn svo tækifæri til að æfa undir leiðsögn þessara kappa. Æfingarnar eru einungis fyrir iðkendur hjá Mjölni og þeim að kostnaðarlausu.