Jæja hvað fannst mönnum um síðasta UFC.

Það kom mér á óvart hvað Velasquez fór létt með Lesnar. Cain átti auðvelt með að koma sér á lappir eftir að Brock tók hann niður og eftir það var eftirleikurinn “auðveldur”

Jake Shields kuttaði greinilega allt of mikið fyrir þennan bardaga og hann var ekki eins og hann á að sér að vera. Auðvita er Kampmann góður andstæðingur en ég held að Jake eigi mikið inni ef hann nær að koma sér í 170 pundin á heilsusamlegri hátt.

Diego Sanchez vs Paulo Thiago var hörkubardagi og var ég sáttur með Diego, algert animal

Ræðið