Þessi bardagi var jafnvel enn meiri skrípaleikur en maður bjóst við.

Þetta byrjaði þannig að í vigtuninni náðist ekki nákvæm þyngd á Butterbean þar sem hann MAXAÐI ÚT vigtina sem fór ekki hærra en 200Kg. Hann hefur alltaf verið feitur en nú virðist hann vera orðinn á stærð við plánetu, ég er hissa að hlutirnir í herberginu tóku ekki á loft og fóru að snúast í kringum hann þar sem hann hlýtur að vera kominn með sitt eigið aðdráttarafl.

Ekki var nóg með það heldur gleymdi pólverjinn sem fenginn var til að syngja Bandaríska þjóðsönginn.

Svo var bardaginn hlægilegur, Butterbean sprakk eiginlega á því við það að klifra upp í hringinn hann í það lélegu formi. Þegar Mariusz fór í double leg á hann datt hann bara á bakið og festist þannig eins og skjaldbaka sem var snúið við.

[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=nL1WatxhwCM&feature=player_embedded

Bætt við 19. september 2010 - 23:40
Ekki var nóg með það heldur gleymdi pólverjinn sem fenginn var til að syngja Bandaríska þjóðsönginn TEXTANUM átti þetta að vera.